Kjúklingur í engifer og hvítlauk 
4-5 kjúklingabringur
Ferskt engifer eftir smekk og 2-3 rif af hvítlauk
Eðal grillkrydd frá pottagöldrum
Hálfur dl Isio 4 matarolía
Sósa
1 stk. piparostur
1 peli matarrjómi
1 nautakjötsteningur
Engiferið og hvítlaukurinn eru rifin niður í olíuna og því næst kryddið eftir smekk. Kjúklingabringurnar eru settar í lögin og látnar marínerast í klukkutíma. Því næst eru bringurnar grillaðar og borðaðar með fersku salati og bökuðum kartöflum.
