Kínverskt nautakjöt
1 askja kínverskt Chop Suey frá Toro
400 g nautafillet
1 spergilkálsknippi
2 msk. kasjúhnetur
3 msk. sveppasojasósa (Mushroom Soyasaus)
Aðferð: Setjið innihald pokans sem merktur er kryddlögur (marinade) í skál ásamt kryddblöndunni úr kryddpokanum (toppkrydder) og sveppasojasósunni. Skerið kjötið í þunnar, litlar sneiðar, setjið það í skálina, blandið vel og látið liggja í leginum í um 30 mínútur. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Skiptið spergilkálinu í litla kvisti og sjóðið það í léttsöltu vatni þar til það er rétt orðið meyrt. Snöggsteikið kjötið á vel heitri pönnu. Hellið chop suey sósunni yfir. Bætið við 1 dl af vatni og síðan kasjúhnetunum. Hitið að suðu og berið fram strax, ásamt grjónunum og spergilkálinu.
