Ljúffeng marengskaka
Botn
5 eggjahvítur
220 gr. púðursykur
Ofninn stilltur á 150 gráður
Eggjahvíturnar og púðursykurinn eru stífþeytt í hrærivél þar til deigið er orðið stinnt og flott. Það er tilvalið að setja það í stórt hjartalaga form eða ofnskúffu.
Kakan er bökuð við 150°C heitan ofn. þá er slökkt á ofninum og botninn hafður inni í honum meðan ofninn kólnar smám saman. Klukkutíma eða svo á meðan hún kólnar.
Þeytið 1/2 lítra af rjóma og setjið á kökuna þegar hún er orðin köld.
Marineruð jarðaber
400 gr. frosin jarðaber
2 msk. balsamic edik
3 msk. flórsykur
Þegar jarðaberin eru þiðin eru þau skorin í tvennt og síðan í litlar þunnar sneiðar. Þeim er raðað í skál eða eldfast mót, balsamic edikinu er bætt út á ásamt flórsykrinum . Gott er að byrja á því að marinera jarðaberin því þá verða þau verulega djúsí þegar kakan er tilbúin.
Kökuuppskriftin er innblásin af vef Sælkerapressunnar og myndin sem birtist er tekin af Mörtu Maríu Pressupenna.
